föstudagur, 7. mars 2014

Himalaya-salt upplausn – hvernig á að gera Sole (frb.solay)



Glerkrukka ca. 5 dl. með þéttu plastloki er hentugt ílát, setja góða botnfylli af Himalaya-salti og hálffylla með köldu vatni, blanda vel saman og láta standa ca. 12 tíma, ef ekki sjást kristallar eftir þann tíma, bæta við salti. Þegar saltið leysist ekki lengur upp er lausnin mettuð og tilbúin til notkunar.










 Saltið er ekki lengur salt og vatnið er ekki lengur vatn heldur er orðin til ný vídd. Þetta er semsé engin venjuleg saltupplausn heldur yfirfærð sólarorka sem hefur geymst í kristalformi saltsins í 250 milljón ár. Engin eiturefni eru í saltinu í fullu samræmi við frumhafið sem þeir mynduðust úr en í því er að finna 84 steinefni/snefilefni sem líkaminn þarfnast. Sagt er að sole upplausnin stuðli að eðlilegu sýrustigi líkamans og hjálpi að halda vatnsbúskapnum í jafnvægi og stuðli þannig að betra orkuflæði. Gott orkuflæði ásamt ,,réttu” mataræði kemur í veg fyrir stíflur og þar með verki og annað ójafnvægi. Þetta er notað eins og remedia, Hálf til ein teskeið útí glas af vatni á morgnana, gerir ótrúlega hluti. 
Tvær tvíblindar rannsóknir hafa verið gerðar á Himalayja-salti og set eg inn slóð hér fyrir þá sem kynnu að hafa áhuga