sunnudagur, 13. október 2013

Virka nálastungur virkilega?


Nálastungur hafa verið til í þúsindir ára, þekkingin fluttist seint til vesturlanda frá Kína þar sem þær voru ásamt urtalækningum einu lækningarleiðirnar. Sumir eru efins og spyrja, virkar þetta virkilega? Reyndar virka nálastungur alltaf þó að þeir, margir hverjir, sem þykjast hafa einkarétt á vestrænum vísindum hafi reynt að tala þær niður vegna þess að virknin var ekki ,,vísindalega sönnuð”. Tekist hefur að sýna með ljósmyndatækni (Kirilian) að orkubrautirnar og orkupunktarnir eru virkilega þar sem þeim var lýst. Þar sem mannslíkaminn hefur rafmagnseiginleika og orkubrautirnar virka eins og hálfleiðarar, nokkurskonar hraðbrautir fyrir innbyrðis skilaboð milli fruma þá er hægt að mæla punktana á yfirborði húðarinnar því þar er minnst mótstaða. Það sem áður var einungis hægt að meta með því að skoða og þreifa (púls) er nú, þar að auki, hægt að mæla og meta hlutlægt.
Kínverskar lækningaaðferðir hafa verið undir smásjánni og til er töluvert af rannsóknum sem staðfesta gildi þeirra.
http://www.ryodorakuresearch.com/references.php#1
Þessvegna er óþarfi lengur að efast, sannfærstu sjálfur og pantaðu tíma. 

 

1 ummæli:

  1. Nei.
    http://health.spectator.co.uk/say-no-to-the-needle-why-acupuncture-just-isnt-worth-trying/

    SvaraEyða